
Ferðast þú með hreint fótspor?
Hefur þú áhyggjur af umhverfinu á meðan þú ferðast? Við tókum niður nokkur ráð um hvernig á að ferðast með hreint fótspor og fara í umhverfisvænasta ferðalagið þitt
Ekkert flugviskubit
- Við bjóðum upp á kolefnisjafnað flug hvert sem er. Fyrst og fremst er hægt að gróðursetja tré sem jafnar fótspor þitt og þarft þá ekki að neinar áhyggjur af mengun frá fluginu eða svokallað flugviskubit.
- Þegar þú ert komin á áfangastaðinn getur þú leigt rafmagnsbíl í staðinn fyrir bensín eða dísil bíl. Við erum í samstarfi með nokkrum bílaleigum sem leigja út rafmagnsbíla og færð þú gott tilboð hjá okkur og þú ferðast með hreint fótspor.
Almenningssamgöngur menga minna!
- Sniðugt er að taka almenningssamgöngur og sparar það einnig enn meiri pening.
- Ef þú er að ferðast t.d. á meginlandi Evrópu er hægt að taka lest eða rútu á milli staða og sleppa við að taka óþarfa flug og ferðast því með hreinu fótspori.
Hótel með hreint fótspor
- Val á hótelum getur verið erfitt, en með okkur er valið frekar auðvelt.
- Við erum með fullt af tilboðum af hótelum sem eru umhverfisvæn og auðvitað allt innifalið. Hótelin endurnýta allt sem þau geta endurnýtt og nota sjálfbæra orku og eru því frábær kostur fyrir umhverfisvæna ferðalagið.
Ps. Taktu með þér fjölnotapoka því þú villt að minningarnar um umhverfisvæna ferðalagið þitt endist í mörg ár en óþarfi að þær endist í 500 ár.
Komdu með til okkar grænustu landa meðan þú ferðast með hreint fótspor
Okkar grænustu lönd eru nokkur og bjóðum við upp á vegleg tilboð.
- Tilboðið okkar til Japans gerist ekki betra og er eitt af grænustu löndunum okkar og þarft ekki að hafa áhyggjur af flugviskubiti þrátt fyrir langt flug.
- Japan stendur fram úr þegar kemur að umhverfismálum. Þar er endurvinnsla tekinn mjög alvarlega og er ekki sóað neinu.
- Einnig erum við með tilboð til eyjunnar Tenerife og Nýja Sjálands. Einnig erum við með geggjað tilboð á flugi til Spánar. Þessir framandi staðir hafa margt upp á að bjóða og þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af umhverfinu á meðan þú ferðast því við reddum þessu fyrir þig og þú nýtur draumafrísins áhyggjulaus.