Ferð til paradísareyjunnar Tenerife
- Sep 20, 2022
- 2 min read
Updated: Oct 6, 2022
4 ástæður til að ferðast til paradísareyjunnar Tenerife
Komdu með í draumafríið
Beint flug til Tenerife!
Ferðin okkar til paradísareyjunnar Tenerife passar upp á að þú getir ferðast með hreint fótspor og án þess að hafa áhyggjur af því að menga umhverfið með öllu inniföld og beint flug!
Verð frá 100.000 kr.

Eyjan fagra hefur upp á allt að bjóða meðal annars:
o Fagrar strendur
o Góðan mat
o Frábærar gistingar
o Flottar verslanir
o Einstakt veður allt árið um kring
Kolefnisjafnað og beint flug!
Flugvélin sem flogin, sem er auðvitað beint flug, er í ferðum okkar til paradísareyjunnar eru öll kolefnisjöfnuð og þarf ekki að hafa neitt flugviskubit. Þegar komið er á flugvöllinn taka á móti ykkur bílar sem eru knúnir rafmagni en einnig er hægt að fara með rútu á sem margir komast í og þar með er mengunin talsvert minni á hverja manneskju.
Hótel með öllu inniföldu!

Hótelin sem við bjóðum upp á í gegnum ferðaskrifstofuna passa öll gríðarlega vel upp á umhverfið og endurnýta allt sem hægt er. Einnig er allt innifalið á hótelunum. Hótelin eru öll á Amerískuströndinni, sem er vinsælasti staður paradísareyjunnar, ástæða þess er sú að þú getur gengið, hjólað eða hlaupið á alla þá staði sem þig langar og er það hentugra heldur en að leiga sér bíl yfir allt fríið. Bæði kostar það mikið að leigja sér bíl og ef fólk sleppur við það mengar það mun minna.
Flottasti vatnsrennibrautagarður heims!

Þrátt fyrir að það sé allt innifalið, þar á meðal skemmtannir á hótelinu getur verið gaman að brjóta upp daginn með ferð í vatnsrennibrautagarð. Það er mikil og fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa og því geta allir fundið sér eitthvað við hæfi á þessari paradísareyju. Fyrir eldra fólkið er mikið er um Vatnasport, gönguferðir, flottar verslanir og frábæran mat. Fyrir yngra fólkið eru margir skemmtigarðar á eyjunni þar á meðal flottasti vatnsrennibrautagarður heims Siam park og er hægt að ganga eða taka rútu upp í þann garð sem kostar ekki neitt.
Einnig eru:
o Aqualand
o Loro park
o Monkey park
Sem eru einnig gífurlega vinsælir garðar á meðal fólks sem heimsækir eyjuna.
Flottustu verslanirnar!
Á Tenerife eru fjöldi verslanamiðstöðva þar sem mörg þekkt vörumerki eru til sölu.
Siam mall er nálægt Amerískuströndinni og tekur innan við 5-10 mínútur í rútu eða um 30-60 mínútna ganga.
Einnig eru:
o Parque Santiago
o Safari Center
o Bahaia del Duque
o Oasis

Comments